Sundlaugar landsins opnuðu á nýjan leik í dag eftir samkomubann. Sundlaugar Akureyrar hafa líkt og aðrar sundlaugar landsins verið lokaðar frá 24. mars vegna Covid-19.
Í Sundlaug Akureyrar voru fastagestirnir mættir stundvíslega í morgun en ekki hefur þurft að takmarka aðgang að lauginni það sem af er morgni að því er kemur fram á mbl.is. Gott veður er á Akureyri og eiga starfsmenn von á að margir nýti góða veðrið til sundiðkunar.
Sjá einnig: Tíminn vel nýttur í Sundlaug Akureyrar
Í sundlauginni á Akureyri var samkomubannið nýtt til nauðsynlegra framkvæmda á búnings- og sturtuklefum og nú er unnið að því að leggja lokahönd á verkið. Þrátt fyrir að framkvæmdum sé ekki alveg lokið þá þurfti ekki að fresta opnun vegna þess að líkamsræktarstöðin World Class hefur lánað búningsklefa til afnota fyrir sundlaugargesti fyrstu dagana.