MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Farsældardagur Norðurlands eystra haldin í dag

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Farsaeldardagur_Thorleifur
kaffid.is

Farsældarráð Norðurlands eystra stendur fyrir Farsældardegi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í dag.

Dagurinn er vettvangur fyrir samtal og miðlun reynslu um farsæld barna á Norðurlandi eystra. Áhersla verður lögð á samþættingu þjónustu, samstarf þvert á kerfi og hvernig efla megi stuðning við börn og fjölskyldur á svæðinu.

Á dagskrá eru erindi fulltrúa sveitarfélaga og ríkis um stöðu og þróun farsældarstarfsins. Meðal annars verður fjallað um nærumhverfi og stuðningsnet barna, reynslu af innleiðingu farsældar í smærri sveitarfélögum, samþættingu þjónustu, framlag heilbrigðis-, félags- og menntakerfa og reynslu foreldra af samræmdri þjónustu.

Síðdegis í dag verður pallborð þar sem rætt verður um tækifæri og áskoranir við samþættingu þjónustu og hlutverk ólíkra aðila í að efla farsæld barna. Fundarstjóri er Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra.

„Þetta hefur verið bæði krefjandi og spennandi verkefni. Þegar við hófum þessa vinnu var engin tilbúin forskrift til staðar og því höfum við þurft að byggja upp samstarfið frá grunni og móta sameiginlega sýn um farsæld barna á Norðurlandi eystra,“ segir Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Farsældardagurinn er ætlaður öllum sem starfa með börnum og fjölskyldum auk annarra sem hafa áhuga á málefnum barna og uppbyggingu farsældarsamfélags á Norðurlandi eystra.

Um farsældarlögin:

Markmið farsældarlöggjafarinnar er að börn og foreldrar þeirra fái rétta aðstoð á réttum tíma og frá réttum aðilum. Í stað þess að þjónusta ólíkra kerfa sé aðskilin er lögð áhersla á að þeir sem koma að málefnum barns geti unnið saman að lausnum þegar fjölskyldan óskar eftir samþættingu þjónustu.

Börn og foreldrar geta fengið aðstoð tengiliðar, meðal annars innan heilsugæslu, skóla eða félagsþjónustu, við að finna og sækja þá þjónustu sem þörf er á. Í flóknari málum getur málstjóri haldið utan um samþættingu þjónustunnar.

Löggjöfin leggur aukna áherslu á ábyrgð starfsfólks sem vinnur með börnum, m.a. í skólum, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og tómstundastarfi, á að koma auga á þarfir barna og bregðast við þeim.

Meginmarkmiðið er að börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa eða þurfi sjálf að bera ábyrgð á að tengja saman ólíka þjónustuaðila. Barnið og hagsmunir þess eiga að vera útgangspunkturinn í þeirri þjónustu sem veitt er.

„Við viljum færa lögregluna nær samfélaginu og byggja upp traust með sýnilegri nærveru og beinum samskiptum við íbúa, ekki aðeins þegar eitthvað hefur farið úrskeiðis. Sérstaklega skiptir máli að ná betur til yngri kynslóðarinnar og skapa tengsl áður en vandamál verða að útköllum. Slík samskipti hafa mikið forvarnargildi og geta gert okkur kleift að grípa fyrr inn í aðstæður, jafnvel áður en skaði verður,“ segir Halldór Tumi Ólason hjá lögreglunni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026