Sala á áfengi í veitingasölum skíðasvæðisins hófst um helgina í Hlíðarfjalli. Fjölmennt var á skíðasvæðinu en Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að áfengissalan sem slík hafi farið vel af stað. Þetta kemur fram í umfjöllun á mbl.is.
Bæjarráð Akureyrarbæjar veitti skíðasvæðinu vínveitingaleyfi í síðasta mánuði. Brynjar segir í samtali við mbl.is að eitthvað hafi verið af fólki sem kom inn á skíðasvæðið með itt eigið áfengi. Hann telur betra að selt sé léttvín í veitingasölunni en að fólk sé að smygla sterkara áfengi inn á svæðið.
„Okkur finnst betra að fólk sé bara með léttvín inni á veitingastað í staðinn fyrir að það sé að gera svona. Þetta er bara það sem er og verður og það er erfitt að stöðva þetta því miður,“ segir Brynjar í samtali við mbl.is.
Engar tilkynningar bárust Hlíðarfjalli vegna áfengisdrykkju. Eitthvað var um kvartanir á samfélagsmiðlum vegna drykkju en Brynjar segir að það hafi ekki tengst áfengissölunni heldur af því að ungmenni hafi verið að smygla sterku áfengi inn á skíðasvæðið. Hann segir erfitt að auka eftirlit með áfengisdrykkju vegna fjölda starfsfólks.
„Það er fáranlegt að umræðan snúist alltaf um það hvort megi selja áfengi á veitingastöðum þegar fólk er nú þegar að drekka, en þá er það allavega undir eftirliti. Við erum bara með vissan fjölda af starfsfólki, það er rosa erfitt fyrir okkur að vera að auka eftirlit með þessu,“ segir Brynjar.