MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fara í óhreinum brókum í Sundlaug Akureyrar

Eftir María Hjelm·
sundlaug-og-listagil-6-kristofer-knutsen-2
kaffid.is

MBL greindi frá því fyrir stuttu að karlkyns sundlaugargestir stunduðu það í auknum mæli að fara í nærbrók innan undir sundskýlurnar í sund hér á landi. 

Forstöðumaður Sundlauganna á Akureyri, Gísli Rúnar Gylfason, telur þetta vera útbreitt ástand og að laugarnar á Akureyri fari ekki varhluta af vandanum. Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV um málið.

„Tískubylgjan lýsir sér þannig að klæðast nærbuxum undir sundskýlunni og toga sundskýluna aðeins niður svo sjáist í nærbuxnastrenginn, sem oftar en ekki er frá þekktu tískumerki,“ segir í umfjölluninni.

Auk þess fara sundlaugargestir sífellt oftar beint úr ræktinni í sund, án þess að skipta um nærföt eða fara í sturtu áður. Starfsfólk sundlauganna þarf ítrekað að leggja áherslu á að gestir fylgi reglum um persónulegt hreinlæti. Það þýðir í stuttu máli að allir eigi að fara í sturtu áður en farið er út í laugarnar og að enginn sé í brók, síst af öllu óhreinni brók, undir sundskýlunni.

„Það er mis hreint það sem er þarna undir, það er partur af vandamálinu,“ segir Gísli Rúnar.

Hér má lesa viðtalið við Gísla Rúnar á vef RÚV í heild sinni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026