Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af framtíð Sjúkrahússins á Akureyri vegna fjárhagsstöðu þess.
Jóna Valdís Ólafsdóttir, formaður fagráðs sjúkrahússins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að nauðsynlegt sé að leiðrétta grunnframlag til sjúkrahússins á Akureyri til að viðhalda þeirri þjónustu og þekkingu sem býr innan veggja þess.
„Staðan er þannig að við höfum uppsafnaðan rekstrarhalla undanfarin ár og fjárheimildir í fjárlögum eru ekki að duga fyrir þeirri þjónustu sem við erum að veita í dag,“ segir Jóna Valdís en nánar er rætt við hana á vef RÚV.
Yfirlýsing fagráðs Sjúkrahússins á Akureyri:
Vegna umræðu um fjárhagsstöðu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) telur
fagráð sjúkrahússins sig knúið til þess að senda frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu:
Fagráð lýsir yfir þungum áhyggjum af framtíð Sjúkrahússins á
Akureyri náist ekki að laga fjárhagsstöðu þess. Fagráð er
þverfaglegt ráð sem skipað er fulltrúum ólíkra fagstétta innan
sjúkrahússins. Fagráðið telur að auka þurfi fjármagn til
sjúkrahússins til þess að viðhalda þjónustu og þekkingu sem fyrir er
og tryggja nauðsynlega framþróun starfseminnar.
Sjúkrahúsið á Akureyri þjónustar stórt svæði á Norður- og
Austurlandi. Íbúarnir treysta á öruggt aðgengi að þeirri fjölþættu
þjónustu sem sjúkrahúsið veitir. Stækkandi ferðaþjónusta reiðir sig
á aðgang að þjónustu SAk. Sjúkrahúsið er alþjóðlega gæðavottað
og býr í dag yfir mannauði og þekkingu sem þarf að hlúa að, erfitt
væri að vinna upp tap á mannauði væru einingar í þjónustu og
starfsemi skertar. Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús Landspítala
og þarf því ávallt að vera vel í stakk búið til þess að taka við
sjúklingum þegar neyðarástand skapast, eins og sýndi sig í Covid
faraldrinum.
Fagráð bendir á þann sparnað sem það er fyrir þjóðfélagið að
fólk geti sótt sem mesta heilbrigðisþjónustu í heimabyggð eða
nálægar byggðir. Enginn sparnaður er í því að flytja þjónustu sem
nú er veitt á SAk yfir á Landspítalann. Af því hljótast óþægindi
fyrir sjúklinga og aðstandur auk þess sem kostnaðurinn færist aðeins
til milli eininga. Það er ekki í samræmi við heilbrigðisstefnu
stjórnvalda.
Landsmenn allir þurfa á þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri að halda.
UMMÆLI