Á árinu 2024 fóru 112.666 manns í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík sem er um 15% samdráttur frá árinu 2023 sem var stærsta árið frá upphafi siglinga. Helsta ástæða samdráttar á milli ára er að fyrirtækin þurftu að fella niður mikið af ferðum vegna óvenjulegs tíðarfars undangengið sumar. Þróun farþegafjölda frá árinu 2016 má sjá á meðfylgjandi stöplariti. Fjögur fyrirtæki hafa boðið upp á í hvalaskoðunarferðir á þessu ári. Þetta kemur fram á vef Norðurþings.
UMMÆLI