Fækkun í fjölda ferðamanna sem leita til SAk

Fækkun í fjölda ferðamanna sem leita til SAk

Starfsemistölur Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, fyrir tímabilið 1. janúar 2024 til 1. ágúst 2024 hafa verið birtar á vef Sjúkrahússins. Samantekt má lesa hér að neðan.

  • Fjöldi dvalardaga á tímabilinu janúar til ágúst var rúmlega 17.086 sem er um 15% fækkun frá því í fyrra en að sama skapi er fækkun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn um 10%. Dvalir einstaklinga eru aðeins styttast og meðalfjöldi dvaladaga allra deilda eru núna 4,5 dagar samanborið við 4,7 í fyrra.
  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 77,6% af heildarinnlögnum.
  • Að meðaltali eru um fimm til sex sjúklingar inniliggjandi á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.
  • Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með 90% nýtingu og skurðlækningadeild með rúmlega 78% yfir tímabílið. Geðdeild er með 60% nýtingu en þess má geta að einungis helmingur rúma deildarinnar voru opin í ágúst vegna vinnu við breytingar á deildinni. Rúmanýting er minni á öllum deildum og er ástæðan er sú sama og að ofan greinir að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri.
  • Tæplega 8.250 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1.563 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 1.454 lyfjagjafir á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.
  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta sá sami og í fyrra eða12.103 samanborið við 12.164 á sama tíma í fyrra (sjá graf um komur á bráðamóttöku janúar til júlí ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er nú um 46 mínútur en viðmið okkar eru um 40 mínútna bið eftir lækni.
  • Fjöldi skurðaðgerða janúar til ágúst voru 1.545 sem er aðeins minna en í fyrra þegar 1.670aðgerðir voru gerðar yfir sama tímabil. Tæplega 34% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 191 á móti 206 gerviliðaaðgerðum í fyrra.
  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var 26.885 og gerir það að meðaltali um 110 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur.
  • Rannsóknir á rannsóknadeild hafa dregist aðeins saman en fjöldi rannsókna á lífeðlisfræðideild er sambærilegur og verið hefur undanfarin ár.
  • Á ár hafa fæðst 264 börn samanborið við 270 börn á sama tíma í fyrra.
  • Töluverð fækkun er í komum og innnlögnum ósjúkratryggðra miðað við sama tímabil í fyrra. Bráðamóttakan hefur sinnt 515 ósjúkratryggðum einstaklingum og 76 hafa verið innlagðir en í fyrra höfðu verið lagðir inn 93 einstaklingar og um 600 einstaklingar leitað á bráðamóttökuna.

UMMÆLI