Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eyþings fékk tæplega 15 milljónir króna í bætur fyrir það sem hann taldi ólögmæta uppsögn, þegar gerð var dómsátt í máli hans. Þetta kemur fram Í Morgunblaðinu í dag.
Þar segir að uppsögnin hafi kostað sveitarfélög innan Eyþings á fjórða tug milljóna í heild. Inni í því er kostnaður vegna þess tíma sem Pétri var meinað að mæta til vinnu vegna málsins auk áætlaðs kostnaðar vegna vinnu lögmanns Eyþings. Eyþing eru landshlutasamtök þrettán sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
„Ég var kallaður á fund formanns [Hildu Jönu Gísladóttur] og varaformanns [Kristjáns Þórs Magnússonar] Eyþings og ranglega sakaður um kynferðislega áreitni gagnvart samstarfskonu, að því að mér virðist í þeim eina tilgangi að bola mér úr starfi á sem stystum tíma,“ segir Pétur Þór í samtali við Morgunblaðið.
Í frétt Morgunblaðsins segir að Eyþing hafi óskað eftir því að trúnaður ríkti um útgjöldin og ákvarðanir yrðu færðar í trúnaðarmálabækur sveitarstjórna.