Eyríki frumsýnd á Akureyrarvöku

Heimildarmyndin Eyríki eftir írsk/rússneska leikstjórann Nikolai Galitzine verður frumsýnd í Sambíóunum á Akureyrarvöku þann 28.ágúst næstkomandi klukkan 18.00. Myndin fjallar um þegar Miðgarðakirkja brann til grunna og Grímseyingar þurftu ekki aðeins berjast fyrir uppbyggingu kirkjunnar heldur einnig fyrir tilverurétti sínum í einu afskekktasta samfélagi Íslands.
Eftir sýninguna verður spurt og svarað með leikstjóra myndarinnar og Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri mun einnig sitja fyrir svörum þar sem má búast við fjörugum umræðum um framtíð Grímseyjar.
Tvær aukasýningar verða á myndinni þann 31.ágúst og 3.sept í Sambíóunum Akureyri. Myndin er tilnefnd sem besta Norræna heimildarmyndin á hinni virtu Nordisk Panorama kvikmyndahátíð og var valin á Cannes sem hluti af 5Nordics í heimildarmyndadagskrá Cannes kvikmyndahátíðarinnar í vor.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










