Eyfirski safnadagurinn fer fram á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl næstkomandi. Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð. Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum.
Í tilefni komu sumarsins munu 16 söfn og sýningar opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi kl. 13-17. Þema dagsins í ár er: ferðalög. Margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn:
Hjónin Gísli Einarsson og Guðrún Hulda Pálmadóttir gengu Jakobsveginn, alls 776,2 km, vorið 2017. Þau munu rekja ferðasögu sína í máli og myndum á Amtsbókasafninu á Eyfirska safnadaginn kl. 13.
Á Síldarminjasafni Íslands á Siglufirði mun Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur vera með áhugaverðan fyrirlestur í Gránu, bræðsluhúsi Síldarminjasafnsins kl. 14.
Fyrirlesturinn fjallar um sögu verkakvenna og þætti þeirra í verðmætasköpun í sjávarútvegi, sem sjaldan er gefinn verðugur gaumur. Áheyrendum verður einnig boðið að fylgja síldarstúlkum með togara frá Reykjavík norður til Hjalteyrar. Litið verður inn um gættina á verbúðum verkakvenna og brugðið upp mynd af aðbúnað þeirra og sambúð.
Nóg verður um að vera á Minjasafninu á Akureyri líkt og vanalega á sumardaginn fyrsta, þar sem leikir fyrir börnin eru oftar en ekki hafðir í fyrirrúmi.
Eftirtalin söfn verða opin á Eyfirska safnadaginn 25. apríl – Sumardaginn fyrsta:
- Siglufjörður: Síldarminjasafn Íslands
- Dalvík og Svarfaðardalur: Byggðasafnið Hvoll
- Hrísey: Hús hákarla Jörundar
- Akureyri: Amtsbókasafnið á Akureyri (opið kl. 13-14), Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Mótorhjólasafn Íslands, Nonnahús og Norðurslóð.
- Eyjafjarðarsveit: Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Sólgarði.
- Grýtubakkahreppur: Gamli bærinn Laufás, Útgerðarminjasafnið á Grenivík.
Margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn! Nánari upplýsingar um viðburði má sjá á facebook-síðu Safna og sýninga við Eyjafjörð.
Myllumerki Eyfirska safnadagsins er #eyfirski