MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Evrópska samgönguvikan hefst í næstu viku

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Akureyri
Krissi – Akureyri· kaffid.is

Evrópska samgönguvikan á Akureyri hefst mánudaginn 7. september með verkefninu Göngum í skólann. Meginmarkmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Skólarnir munu afhenda nemendum endurskinsmerki til að auka sýnileika í umferðinni. Ýmsir viðburðir munu fara fram þar á meðal:

Miðvikudaginn 9. september fara fram tónleikar í strætó með bæjarlistamanni Akureyrar, Vilhjálmi B. Bragasyni. Tónleikarnir fara fram í leið 6 og hefjast klukkan 10.23 og standa til hádegis.

Sunnudaginn 13. september fer fram Götugangan. Tímataka verður fyrir 60 ára og eldri og tólf ára og yngri en öllum er velkomið að taka þátt. Veitt verða þátttökuverðlaun.

Að sama skapi verður blásið til strætóleiks fyrir þau yngstu í tilefni Samgönguvikunnar en leikurinn verður auglýstur betur síðar.

„Íbúar eru sérstaklega hvattir til að kynna sér fjölbreytta ferðamáta og prófa að ganga, hjóla eða nýta almenningssamgöngur í stað einkabílsins þegar aðstæður leyfa. Virkir ferðamátar efla heilsu og vellíðan, draga úr umferð og bæta loftgæði. Jafnvel ein ferð án bíls getur skipt máli fyrir bæði einstaklinginn og umhverfið,“ segir á vef Akureyrarbæjar þar sem nánari upplýsingar um hvern og einn viðburð koma síðar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026