MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Espressobarinn og Skyr600 opna á Glerártorgi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
244772110_4545105748875021_3400232989862053156_n
kaffid.is

Nú geta kaffiþyrstir gestir Glerártorgs farið að taka gleði sína á ný því það standa yfir breytingar á bilinu við hlið Lyf og heilsu og stendur til að opna kaffihús og skyrbar í nóvember.

Stofnendur kaffihússins eru Guðmundur Ómarsson, Karen Halldórsdóttir, María Hólmgrímsdóttir og Pálmi Hrafn Tryggvason og hafa þau staðið í ströngu við hönnun og útfærslu á þessu nútímalega kaffihúsi þar sem gestum mun meðal annars standa til boða að skoða rafræna matseðla og gera pantanir og greiða í gegnum farsíma.

Staðurinn mun bjóða upp á kaffi frá Te og Kaffi og einnig verður Skyr barinn í samstarfi við Örnu og mun vinna með laktósafríar vörur.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026