Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, segir að slökkviliðið sé að ná tökum á eldinum sem kom upp í frystihúsí í Hrísey snemma í morgun. Eldurinn barst í nærliggjandi iðnaðarhús en slökkviliðinu tókst að slökkva þann eld. Þetta kemur fram á mbl.is.
Þar er haft eftir Ólafi að á síðasta hálftímanum eða svo hafi tekist að stöðva útbreiðslu eldsins og að nú sé unnið að því að slá á mengun og slökkva þá elda sem enn loga.
Íbúar eru þó áfram beðnir um að hafa alla glugga lokaða og auka kyndingu í íbúðum sínum þar sem mikill reykur og mengun er enn á svæðinu.