Enn opið fyrir umsóknir fyrir Akureyrarvöku
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Akureyrarvaka fer fram dagana 28.–29. ágúst og undirbúningur hátíðarinnar stendur nú yfir. Enn er hægt að vera með í dagskráhátíðarinnar og hægt er að skrá viðburði til 20. ágúst á akureyrarvaka@akureyri.is.
Nú þegar er komin gróf dagskrá fyrir hátíðina sem sjá má á vef Akureyrarbæjar.
Í tilkynningu frá bænum segir: „Áhersla verður lögð á flóamarkaðsstemningu í miðbænum þar sem félagasamtök, góðgerðarfélög og einstaklingar geta tekið þátt. Þau sem vilja vera með götusölu eru einnig hvött til að hafa samband.“
Að sama skapi er leitað eftir matarvögnum til að skapa líflega og fjölskrúðuga matarupplifun fyrir gesti hátíðarinnar.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










