Framsókn

Endurnýja samstarfið til næstu þriggja áraÞórunn Inga Ingjaldsdóttir forstöðumaður Markaðs- og Samskiptadeildar Samskip og Fjalar Úlfarsson formaður Andrésarnefndar við undirritun samningsins á fyrsta opnunardegi vetrarins í Hlíðarfjalli síðastliðinn laugardag.

Endurnýja samstarfið til næstu þriggja ára

Samskip og Andrésar andar leikarnir hafa endurnýjað samstarf sitt til næstu þriggja ára. Samskip hefur um langt árabil verið traustur bakhjarl leikanna sem fara fram á Akureyri árlega.

„Það er okkur gríðarlega mikilvægt að leikarnir hafi styrktaraðila úr atvinnulífinu sem með aðkomu sinni hjálpa til við að gera framkvæmd leikanna sem allra besta fyrir þátttakendur og fjölskyldur þeirra,“ segir Fjalar Úlfarsson formaður undirbúningsnefndar Andrésar leikanna.

„Samskip hefur verið áberandi á öllu efni leikanna og prýða fána og veifur víða um bæinn þegar leikarnir standa yfir. En Samskip hefur einnig aðstoðað við flutning á aðföngum og búnaði undanfarin þau 12 ár sem samstarfið hefur staðið,“ segir í tilkynningu Andrésar andar leikanna á Facebook.

Undirbúningur leikanna 2023 hefur staðið yfir síðan í september og er það von framkvæmdaraðila að 47. leikarnir verði glæsilegir og þátttaka skíða- og brettabarna af öllu landinu verði góð eins og verið hefur undanfarin ár.

VG

UMMÆLI

Sambíó