Akureyrarbær mun endurbæta sparkvelli tveggja grunnskóla á Akureyri í ár, við Giljaskóla og Lundarskóla. Á næsta ári verður ráðist í endurbætur á sparkvöllum við Síðuskóla, Glerárskóla og Naustaskóla en nú þegar er búið að skipta um gras á völlum við Oddeyrarskóla og Brekkuskóla. Vikudagur greinir frá þessu í dag.
Umhverfis- og mannvirkjaráð bæjarins hefur samþykkt tilboð lægstbjóðanda í verkið í ár sem eru rúmar 16 milljónir króna.
Endurnýjunin er hluti af viðhaldi vallanna en mikil umræða í samfélaginu var um gervigras á sparkvöllum fyrir tveimur árum vegna dekkjakurls í gervigrasinu sem þykir hættulegt heilsunni. Akureyrarbær ákvað í kjölfarið að ráðast í endurnýjun á átta sparkvöllum þar sem dekkjakurlinu er skipt út en grasinu hefur verið skipt út á völlunum eftir aldursröð.
UMMÆLI