Endurbyggðu stökkpall í Giljahverfi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Stökkpallur á túninu sunnan Vættargils á Akureyri fékk andlitslyftingu í síðustu viku þegar vinirnir Andri Björn Eggertsson, Björgvin Jóhann Eggertsson, Styrmir Máni Andrason, Guðmundur Hjálmarsson, Gestur Antonsson og Ríkarður Máni Leifsson tóku sig til og endurgerðu pallinn.
Verkið tók þrjú kvöld og einn laugardag. Geitur og Gröfur ehf. lögðu til gröfu og Finnur ehf. dráttarvél með vagni ásamt mold.
Greint er frá á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar þar sem má sjá myndir af framkvæmdunum:
Tengdar greinar
Uppfært: 12. september 2026










