Umhverfis-og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar hefur samið við ÁK smíði um framkvæmdir við endurbætur á Listasafninu á Akureyri. Samningurinn við fyrirtækið hljóðar upp á rúmar 413 milljónir en heildarkostnaðurinn er áætlaður rúmar 576 milljónir. Búið er að greiða 40 milljónir í hönnunarkostnað.
Framkvæmdir eru hafnar og er áætlað að verkinu ljúki í sumarbyrjun 2018.
UMMÆLI