Körfuknattleikskonan Emma Karólína Snæbjarnardóttir var valin leikmaður ársins í 1. deild kvenna í körfubolta á lokahófi KKÍ, Körfuknattleikssambands Íslands, í lok mars.
Emma sem er á átjánda aldursári hefur verið í lykilhlutverki í liði Þórs í vetur. Liðið hafnaði í 2. sæti deildarinnar og er nú í undanúrslitaeinvígi gegn Fjölni. Liðin mætast í annarri viðureign einvígisins á morgun klukkan 16:00 en Fjölniskonur unnu fyrstu viðureignina 95:90. Þórskonur þurfa því á sigri að halda til þess að halda einvíginu gangandi.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Emma var einnig valin í úrvalslið 1. deildarinnar þar sem hún var eini Þórsarinn í liðinu.










