Elta Ljós – Listasýning hjá Gillian Pokalo á Leyni

Dagana 27. ágúst til 9. septmeber mun Gillian Pokalo verða með sýningu sem nefnist Elta Ljós á skemmtistaðnum Leyni. Sjálf sýningaropnunin verður þann 29. ágúst kl. 20:00.
Um sýninguna
Að elta ljósið og halda í hverfular stundir. Verkin sem eru sýnd hér á Leyni voru öll sköpuð í sumar af Gillian með silkiþrykk og sólarprentun til að fanga sólskinsstundir, skugga, og síbreytilegar tilfinningar.
Gillian fluttist til Íslands árið 2023 eftir að hafa starfað sem listamaður og listakennari í Filadelfíu í Pennsylvaníu. Hún her útsrkifuð frá Moore College of Art & Design (BFA) og Háskóla Íslands (MEd) og er meðlimur í SÍM, Myndlistarfélaginu á Akureyri og í stjórn Gilfélagsins Deiglunnar. Hún er einnig listakennari við Naustaskóla, stofnandi stjórnar Samlagiðs Sköpunarverkstæðis og meðlimur í listahópnum Þúfa 46.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










