MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ellefu þreyttu sveinspróf í vélvirkjun í VMA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
velvirkjar
kaffid.is

Sveinspróf í vélvirkjun var í húsakynnum málmiðnbrautar VMA um síðustu helgi og þreyttu ellefu prófið, flestir próftakanna höfðu verið í námi í VMA. Þetta kemur fram á vef skólans.

Prófið var tvískipt, annars vegar tveggja tíma skriflegt próf sem var föstudaginn 7. febrúar. Í skriflega prófinu var m.a. spurt um vélar, loft og vökvakerfi, frystikerfi, öryggisfræði, suðu og lóðningar og verkáætlanir auk almennra spurninga.

Verklegi þáttur prófsins var síðan sl. laugardag og sunnudag, 8. og 9. febrúar, og höfðu próftakar þrettán klukkustundir til þess að ljúka þessum prófhluta. Verklega prófið skiptist í smíðaverkefni, bilanaleit í díselvél, slitmælingar í díselvél, suðuverkefni þar sem prófað var í flestum algengum suðuaðferðum á járni, kopar, áli, steypujárni og ryðfríu stáli, frágang smíðaverkefnis og vinnuhraða við smíðaverkefnið.

Mynd: Hörður Óskarsson/vma.is

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026