Elko veitir Kvennaathvarfinu gjöf

Í dag veitti Elko Kvennaathvarfinu á Akureyri kærkomna gjöf í tilefni af því að nýtt húsnæði hefur verið tryggt fyrir starfsemina. Fólk hefur verið í óðaönn að gera húsnæðið tilbúið og verður starfsemin sett af stað án tafar. Venjulega styrkir Elko ýmsa starfsemi í kringum jólin og þótti tilvalið að færa Kvennaathvarfinu þessa gjöf. Gjöfin innihélt meðal annars ísskáp, þvottavél, þurrkara og öll helstu heimilistæki.

Þakkaði Kvennaathvarfið fyrir gjöfina og benti á að hægt er að styrkja starfsemina í gegnum hlekkinn hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!