Elko styrkir Zontaklúbb Akureyrar
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Elko veitti í dag Zontaklúbbi Akureyrar ríkulega gjöf í formi tækjabúnaðar til þess að styðja við öfluga starfsemi klúbbsins. Eva Halapi, formaður klúbbsins, tók við gjöfinni af Hauki Hergeirssyni, verslunarstjóra Elko á Akureyri. Gjöfin innihélt meðal annars sjónvarp, veggfestingu, fartölvu og fjarskiptabúnað.
Zontaklúbbur Akureyrar var stofnaður árið 1949 og vinnur að því að stuðla að jafnrétti og bæta stöðu kvenna, bæði í heimabyggð og á heimsvísu. Í klúbbnum starfa 25 konur úr fjölbreyttum starfsgreinum sem safna fé til styrktar mikilvægum málefnum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. október 2026





