Raftækjaverslunin Elko opnar á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 10. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins til fjölmiðla.
Verslunin sem verður 1000 fermetrar verður staðsett að Tryggvabraut 18, með aðgengi að Furuvöllum að því er segir í fréttatilkynningu frá versluninni.
Sjá einnig: Elko opnar verslun á Akureyri
Samkomutakmarkanir hafa sett strik í reikninginn við opnunina sem hefur staðið til í nokkurn tíma. Við opnunina á morgun verður hugað að öllum sóttvörnum eins og best verður á kosið. Til að mynda verður grímuskylda og fjöldatakmörkun.
„Með opnuninni er ELKO að stíga stórt og mikilvægt skref í átt að því að færa þjónustuna ásamt gríðarlegu vöruúrvali nær viðskiptavinum sínum á Norðurlandi, en viðskiptavinir hafa margir hverjir beðið lengi eftir þessari opnun,“ segir Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ELKO á Akureyri.
Tíu starfsmenn verða í fullu starfi í versluninni og má reikna með svipuðum fjölda í hlutastarfi.
UMMÆLI