NTC

Elín Díanna aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri skipuð í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð

Elín Díanna aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri skipuð í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð

Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor og dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri hefur verið skipuð í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð af Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Þetta kemur fram á vef Háskólans á Akureyri.

Þar segir:

Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor og dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri hefur verið skipuð í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð. Ráðið er skipað af forsætisráðherra til fjögurra ára í senn í samræmi við lög um Vísinda- og nýsköpunarráð nr. 137/2022. Ráðherra skipar níu fulltrúa í ráðið á grundvelli tillagna frá sérstakri tilnefningarnefnd. Varafólk er tilnefnt og skipað með sama hætti.

Ofangreind lög tóku gildi 1. apríl síðastliðin og er markmið laganna að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi.

Hlutverk Vísinda- og nýsköpunarráðs er að:

  • Veita ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og ráðherra sem fer með málefni vísinda- og nýsköpunar ráðgjöf um stefnumótun á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar, sérstaklega gagnvart mikilvægum samfélagslegum áskorunum.
  • Veita ráðherranefnd endurgjöf með því að fjalla um framtíðarsýn og stefnu stjórnvalda og setja fram rökstuddar tillögur að umbótum með tilvísun í alþjóðlega þróun á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar.
  • Stuðla að upplýstri og gagnrýnni umræðu um vísindi, tækni og nýsköpun, stöðu greinanna og mikilvægi fyrir íslenskt samfélag með skýrslum og opnum fundum.
  • Birta árlega stöðuskýrslu um vísindi, tækniþróun og nýsköpun á Íslandi.
  • Vinna með sérfræðingum á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar innan ráðuneyta að betri þekkingu á stöðu vísinda-, tækniþróunar- og nýsköpunarmála á Íslandi, reglubundnum kynningum og mælikvörðum á sviðinu.

Elín Díanna er með BA gráðu í sálfræði, Meistarapróf M.S. í klínískri sálfræði með sérhæfingu í heilsusálfræði frá Rosalind Franklin University of Medicine and Science og dokstorspróf í klínískri sálfræði frá sama háskóla.

Deila

Sambíó

UMMÆLI