Eldur kviknaði í rútu við Tryggvabraut
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

RÚV greindi frá því fyrr í dag að um klukkan hálf níu í morgun kviknaði talsverður eldur í vélarrými rútu frá SBA Norðurleið sem var á ferð austur eftir Tryggvabraut. Engir farþegar voru um borð og komst bílstjórinn óhultur út. Slökkviliðið mætti fljótt á vettvang og var búið að slökkva eldinn skömmu fyrir níu, en engin hætta stafaði af honum fyrir nærliggjandi bensínstöð eða önnur mannvirki.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










