Eldur kviknaði í bíl í Eyjafjarðarsveit
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Lögregla og slökkvilið voru kölluð út vegna bílelds við heimili í Eyjafjarðarsveit eftir hádegi í dag, RÚV greindi frá. Vel gekk að slökkva eldinn og var komið í veg fyrir að hann bærist í nálæga hlöðu. Hvorki fólki né dýrum varð meint af en lögregla rannsakar nú eldsupptök.
Tengdar greinar
Uppfært: 26. apríl 2026










