Eldur kom upp í mannlausum bíl á bílastæði við Dalsgerði á Akureyri um 11 leytið í morgun. Slökkviliðið á Akureyri var fljótt á svæðið og slökkti eldinn fljótt. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Að sögn sjónvarvotta logaði eldurinn mjög glatt við bensínlok bílsins þegar slökkviliðið mætti á svæðið.
Eins og áður segir var bíllinn mannlaus þegar eldurinn kom upp en eigandi hans var nýkominn heim á bílnum þegar eldurinn blossaði upp.
„Slökkviliðsmenn voru snöggir að ráða niðurlögum eldsins og voru að slökkva í síðustu glóðum þegar fréttastofu bar að garði,“ segir í frétt RÚV en á vef þeirra má sjá myndskeið af störfum slökkviliðsins.
Mynd: Skjáskot/RÚV
UMMÆLI