Slökkviliðið á Akureyri var kallað út að hjólhýsasvæði í Vaglaskógi í gærkvöldi þegar kviknaði í gaskúti á svæðinu. Þetta kemur fram á vef mbl.is.
Eldurinn kom upp um ellefu leytið í gærkvöldi. Eldurinn var ekki mikill og gekk vel að slökkva hann. Lítil hætta skapaðist vegna atviksins.
UMMÆLI