Tvær manneskjur voru í bíl sem valt á Eyjafjarðarbraut eystri við Kálfagerði í Eyjafirðinum á ellefta tímanum í gærkvöldi. Eldur kom upp í bílnum eftir veltuna en það náðist að slökkva hann fljótt. Þetta kemur fram á mbl.is.
Slökkvilið Akureyrar var kallað á vettvang en það var nóg að gera hjá starfsfólki slökkviliðsins í gær vegna brunans í Hrísey.
Fólkið í bílnum var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri en talið er að þau hafi sloppið með minni háttar meiðsli.