Eldur kom upp í bíl á Akureyri

Eldur kviknaði í bíl á Akureyri um tvö leytið í nótt. Bíllinn var mannlaus þegar eldurinn kom upp samkvæmt varðstjóra í lögreglunni á Akureyri.

Bíllinn var staðsettur við Hörpulund og gekk greiðlega að slökkva eldinn.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!