Eldur kom upp í bifreið á Akureyri
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Eldur kom upp í bifreið við Múlasíðu á Akureyri um fjögurleytið í nótt að sögn varðstjóra hjá slökkviliði Akureyrar. Þetta kemur fram á vef mbl.is.
Þar segir að bíllinn hafi verið alelda þegar slökkviliðið mætti á vettvang. Hitinn af eldinum hafði sprengt rúður í nærliggjandi bíl og brætt plast á honum. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu sakaði engan og hætta steðjaði hvorki að fólki né mannvirkjum.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en bifreiðin er gjörónýt. Bifreiðin var kyrrstæð í bílastæði. Að sögn varðstjóra í lögreglunni á Akureyri verður málið rannsakað í dag.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










