Slökkvilið Fjallabyggðar fékk síðdegis á þriðjudaginn tilkynningu um eld í húsi við Eyrargötu á Siglufirði. Boðað var út á hæsta forgangi þar sem ekki var ljóst um umfang eldsins í fyrstu.
Sökum hárréttra viðbragða þeirra sem voru á staðnum var búið að slökkva allan eld þegar slökkvilið kom á vettvang.
Verkefni slökkviliðsmanna fólst því í að tryggja að engar glæður leyndust á bakvið klæðingu utanhúss, en eldurinn kom þar upp.