Eldur kom upp í húsnæði bátasmiðjunnar Seig í Goðanesi á Akureyri fyrr í kvöld. Slökkvistarf gekk vel en að sögn Hólmgeirs Þorsteinssonar, varaslökkviliðsstjóra á Akureyri.
Slökkviliðið fékk tilkynningu klukkan 20:50 um eldinn. Slökkvistarf gekk greiðlega og búið var að slökkva eldinn 20 mínútum eftir að tilkynningin barst. Ekki er vitað hversu mikið tjón varð.
Í húsnæðinu, sem er um 2.000 fermetrar að stærð, er bátasmiðjan Seigur með starfsemi sína. Þar inni eru að minnsta kosti fimm bátar sem verið er að gera við og tveir eru í smíðum.
Magnús Bergson, eigandi húsnæðisis í Goðanesi, segir of snemmt að segja til um mögulegt tjón þar sem slökkviliðið væri enn að störfum.
UMMÆLI