Ekkert nýtt smit á Norðurlandi
Eftir Ritstjórn·

8 ný innanlandssmit greindust á landinu öllu á síðasta sólarhring. Öll voru þau á höfuðborgarsvæðinu. Samtals eru virk smit nú orðin 80 á Íslandi.
Fimm af átta voru í sóttkví. Langflestir af þeim sem eru nú í sóttkví eru á höfuðborgarsvæðinu en 41 er í sóttkví á Norðurlandi eystra og einn í einangrun.
Tengdar greinar
Uppfært: 24. apríl 2026










