Einn gisti í fangaklefa í nótt
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Ein alvarleg líkamsárás og önnur minniháttar eru til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra eftir síðustu nótt. Árásirnar áttu sér stað seint í nótt en enginn hefur verið handtekinn vegna þeirra enn sem komið er. Áverkar eru meðal annars puttabrot. Einn gisti í fangaklefa eftir að hafa framið skemmdarverk.
Þetta kemur fram á vef mbl.is í samtali við Heimir Heiðarsson, varðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










