Einn allra stærsti nýnemahópur í sögu VMA

Nýnemahópur VMA í ár er einn sá allra stærsti í sögu skólans en um 270 nýnemar komu í fyrsta skipti í VMA í gær. Kennsla hefst hjá nýnemum og öðrum nemendum í dagskóla VMA í dag, þriðjudaginn 18. ágúst, samkvæmt stundaskrá.
„Gærdagurinn var sem sagt helgaður nýnemum, bæði nemendum sem koma í skólann beint úr grunnskólanum og einnig eldri nemendum, sem ýmist koma úr öðrum skólum eða eru endurinnritaðir í VMA. Í þessum hópi eru um 100 nemendur. Það er því óhætt að segja að stór hópur nemenda er að hefja nám við skólann núna við upphaf haustannar,“ segir í tilkynningu á vef VMA.
Í dagskóla í vetur stunda um eitt þúsund nemendur nám við skólann, sem er umtalsverð fjölgun frá síðustu skólaárum. Við bætast nemendur í kvöldskólum í rafiðn og byggingadeild og á verknámsbrautum þar sem nemendur stunda nám með daglegri vinnu.
Við bætast svo fjarnámsnemar en ekki liggur fyrir hversu margir þeir verða, enn er hægt að sækja um.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










