Þessa dagana býður Listasafnið á Akureyri upp á fræðsluleik um sýninguna Einfaldlega einlægt undir yfirskriftinni Einfaldlega gaman.
„Tilvalið tækifæri fyrir börn og fullorðna til að staldra við, eiga samtal um myndlist og uppgötva eitthvað nýtt,“ segir í tilkynningu Listasafnsins.
Leikurinn er aðgengilegur í móttöku safnsins og í fræðslurými á 3. hæð.
UMMÆLI