MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Einar Smári tekur á móti norsku konungshjónunum

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Screenshot 2026-05-21 203456
Ljósmynd: grannar.no· kaffid.is

Hinn tíu ára gamli Einar Smári Nilsen, sem á ættir að rekja til Akureyrar en býr í Noregi, hlaut nýverið þann mikla heiður að vera valinn til að taka á móti norsku konungshjónunum. Einar Smári mun ásamt norskum jafnaldra sínum afhenda Haraldi konungi og Sonju drottningu blómvönd þegar þau stíga í land á bryggjunni í heimabæ hans, Etne, þriðjudaginn 26. maí næstkomandi.

„Þetta er mikill heiður og einstakur atburður fyrir svona lítinn strákpolla,“ segir Sigrún Rósa, móðir Einars.

Valið á börnunum til þess að taka á móti konungshjónum var þannig háttað að nöfn barnanna í sveitarfélaginu voru voru dregin úr potti. Það má því með sanni segja að heppnin hafi verið með honum Einari enda er það ekki á hverjum degi sem hálfíslensku barni með rætur að rekja til Akureyrar hlotnast sá heiður að fagna konungshjónum Noregs með þessum hætti.

Einar Smári á íslenska móður sem er fædd og uppalin á Akureyri en faðir hans er norskur og ólst upp í Skånevik í sveitarfélaginu Etne í Noregi. Þrátt fyrir að búa erlendis eru tengslin við Ísland sterk og kemur Einar Smári jafnan „heim“ til Akureyrar á hverju sumri ásamt móður sinni og systkinum.

Heimsókn konungshjónanna er liður í stóru verkefni þar sem þau hafa á undanförnum árum ferðast um Noreg með það markmið að heimsækja öll sveitarfélög landsins.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026