Einar Brynjólfsson áfram oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Niðurstöður úr prófkjöri Pírata liggja nú fyrir. Þingmaðurinn Einar Brynjólfsson mun áfram leiða flokkinn í Norðausturkjördæmi. Þá er Guðrún Ágústa Þórdísardóttir í öðru sæti, líkt og í fyrra. Tvö efstu sæti Pírata í Norðausturkjördæmi eru því óbreytt frá kosningunum 2016.
Aðeins skráðir Píratar gátu tekið þátt í prófkjörinu í Norðausturkjördæmi. Ásamt Einari og Guðrúnu skipa Urður Snædal, Hrafndís Bára Einarsdóttir og Sævar Þór Halldórsson fimm efstu sæti Pírata í Norðausturkjördæmi.
Kosið verður 28. október næstkomandi.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










