Eiginmaður Þórunnar tekur sæti hennar á lista Framsóknarflokksins
Eftir Rakel Guðmundsdóttir·

Friðbjörn Haukur Guðmundsson, bóndi á Hauksstöðum í Vopnafirði, tekur heiðurssæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Frá þessu er greint á austurfrett.is
Friðbjörn tekur sæti eiginkonu sinnar, Þórunnur Egilsdóttur, en Þórunn lést þann 9. júlí á þessu ári eftir baráttu við krabbamein.
Þórunn sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn frá árinu 2013.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










