MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Eiður Smári í þjálfarateymi KA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
eidursmari-sida
kaffid.is

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn til liðs við þjálfarateymi meistaraflokks KA í knattspyrnu. Hann mun vinna eð Hallgrími Jónassyni og teymi hans í baráttunni sem er framundan hjá KA í Bestu deild karla. Þetta kemur fram á vef KA.

„Eið Smára þarf vart að kynna fyrir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum enda einn besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt. Á glæsilegum ferli sínum varð hann meðal annars tvívegis Englandsmeistari með Chelsea auk þess sem hann vann Meistaradeild Evrópu og spænska meistaratitilinn með Barcelona. Þá lék Eiður 88 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 26 mörk. Undanfarin ár hefur Eiður nýtt umfangsmikla reynslu sína úr knattspyrnunni bæði við þjálfun og sem sérfræðingur á ýmsum sviðum íþróttarinnar. Hann hefur meðal annars gegnt stöðu aðstoðarþjálfara A-landsliðs Íslands og U21 árs landsliðsins auk þess sem hann stýrði FH sem aðalþjálfari í Bestu deild karla,“ segir í tilkynningu KA.

Samhliða komu Eiðs Smára verður breyting á þjálfarateymi meistaraflokks karla þar sem Atli Sveinn Þórarinsson stígur út úr teyminu og mun einbeita kröftum sínum að 2. flokki karla og afreksstarfi KA.

Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, fagnar komu Eiðs Smára og segir hana endurspegla þann metnað sem ríkir innan félagsins.

„Við erum gríðarlega ánægð með að fá Eið Smára til liðs við okkur. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu á knattspyrnu sem við teljum að muni nýtast okkur vel í þeim mikilvægu verkefnum sem fram undan eru. Að fá mann með hans bakgrunn og reynslu inn í þjálfarateymið eru skýr skilaboð um þann metnað sem við höfum fyrir KA. Það er hörð barátta fram undan og við ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná okkur úr þeirri erfiðu stöðu sem við höfum komið okkur í,“ segir Hjörvar í samtali við heimasíðu KA.

Nánar á KA.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026