NTC

Uppfært, frestað til morguns – Efnt til samstöðugöngu vegna kjaradeilu KÍ

Uppfært, frestað til morguns – Efnt til samstöðugöngu vegna kjaradeilu KÍ

Uppfært: Frestað hefur verið samstöðugöngunni sem átti að fara fram í dag klukkan 16:30 þangað til á morgun. Nánari upplýsingar koma síðar samkvæmt trúnaðarmanni Lundarskóla.

Fimmtudaginn 7. nóvember munu félagsmenn Kennarasambands Íslands á Akureyri og nágrenni safnast saman og fara í samstöðugöngu. 

Þetta er gert vegna kjaradeilu KÍ við viðsemjendur. Gangan hefst við Rósenborg kl. 16:45 og endar á Ráðhústorgi. Þar munu taka til máls Jónína Hauksdóttir varaformaður KÍ, Daníel Freyr Jónsson kennari í VMA og Hólmfríður Þorgeirsdóttir kennari í Lundarskóla á Akureyri.

Með þessari göngu viljum við hvetja til þess að samningar náist sem fyrst og með þátttöku sýnum við það í verki.

Öll sem styðja það eru velkomin í gönguna svo sem foreldrar, nemendur og aðrir sem styðja kennara og þá kröfu KÍ að fjárfesta í kennurum. 

Sambíó

UMMÆLI