Edda Sigurlaug Indriðadóttir, heiðursfélagi Skautafélags Akureyrar og margfaldur Íslandsmethafi í skautahlaupi, afhenti Skautafélagi Akureyrar um síðastliðna helgin skautahlaupsskautana sína sem hún notaði við flest þau afrek sem hún vann til á glæstum ferli. Skautana afhenti hún félaginu á vormóti ÍSS sem fram fór um síðustu helgi og eru þeir nú til sýnis í Skautahöllinni ásamt verðlaunapeningum hennar og keppnisnúmerinu hennar, 13. Greint er frá á vef Skautafélags Akureyrar þar sem er fjallað ítarlega um Eddu og afrek hennar.
„Edda Sigurlaug Indriðadóttir er ein af frumkvöðlum íslensks skautahlaups á langri braut og sannkölluð fyrirmynd í íþróttasögu landsins. Hún fæddist á Akureyri árið 1936 og hóf ung að æfa skautaíþróttir og keppti á gullaldartímum hraðhlaupsins. Edda er fædd og uppalinn í fjörunni og gat því reimað á sig skautanna heima í eldhúsinu og tiplað á tánum yfir götuna og út á ísinn á Pollinum eins og fram kemur í Sögu Skautafélags Akureyrar eftir Jón Hjaltason,“ segir á vef Skautafélagsins þar sem má lesa nánar um feril Eddu.
„Edda var hluti af sterkri skautahefð á Akureyri á þessum árum og lagði sitt af mörkum til uppbyggingar íþróttarinnar. Edda Sigurlaug Indriðadóttir var framúrskarandi íþróttakona og brautryðjandi í skautahlaupi á Íslandi og afar dýrmætt að skautar hennar skuli nú varðveittir og til sýnis í Skautahöllinni.“










