NTC

easyJet lengir flugtímabil frá London til Akureyrar

easyJet lengir flugtímabil frá London til Akureyrar

Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í dag að það muni bæta við flugferðum frá London Gatwick til Akureyrar í apríl 2025, og í október 2025. Áður stóð til að fljúga út mars á næsta ári, og hefja flugin að nýju í nóvember. Flugfélagið verður því mánuði lengur með flug í boði þennan vetur og að auki næsta haust.

NTC

Ali Gayward, svæðisstjóri easyJet í Bretlandi, tilkynnti þetta á ráðstefnunni Flug til framtíðar í Hofi í dag. Gayward gat ekki verið viðstödd fundinn en sendi myndbandsupptöku þar sem hún fór yfir það hvernig tekist hefði til með flug easyJet til Akureyrar.

„Við erum mjög ánægð með að tilkynna um þessa viðbót við okkar framboð og fleiri valmöguleikum viðskiptavina okkar. Við viljum með þessu mæta vaxandi eftirspurn eftir ferðum til Norðurlands, sem við höfum sérstaklega tekið eftir á milli ára með flugin frá London Gatwick. Með viðbótinni frá Manchester getum við náð til mun fleiri viðskiptavina á Norður-Englandi.

NTC

Áfram verður fylgst vel með eftirspurn frá Manchester og við höfum mikla trú á þeirri leið, miðað við viðbrögðin hingað til. Eftirspurnin eftir vetrarferðum frá Bretlandi er mun meiri en á öðrum árstímum og þess vegna bjóðum upp á flug á þessu tímabili,“ sagði Ali Gayward.

„Það er mikið fagnaðarefni að fá inn flug þessa tvo haust og vormánuði, þar sem þetta opnar á flug í vetrarfríium bæði Breta og Íslendinga. Í apríl hefur verið rólegra hjá norðlenskri ferðaþjónustu og því lengir þetta enn tímabilið þar sem við getum boðið upp á fulla þjónustu og jafnað árstíðarsveifluna,“ sagði Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó