Jarðböðin við Mývatn opnuðu á ný í gær

Jarðböðin við Mývatn opnuðu dyr sínar að nýju í morgun eftir umfangsmiklar endurbætur. Þetta kemur fram á vef Húsavík.com.
Þar segir að í raun sé um nýtt baðlón að ræða, enda hefur öll aðstaða tekið stakkaskiptum og húsakosturinn nær fjórfaldast. Húsnæði Jarðbaðanna hefur stækkað úr um 1.100 fermetrum í 4.000 fermetra. Framkvæmdakostnaður var upphaflega áætlaður um 4,3 milljarðar króna en Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna, staðfesti í samtali við Húsavík.com að kostnaður hefði aukist á framkvæmdatímanum, enda um gríðarlega stóra og flókna framkvæmd að ræða.
Mikil eftirvænting hefur ríkt í Mývatnssveit vegna opnunarinnar og var það heimakonan Helga í Garði sem var fyrst til að stíga inn í ný og endurbætt Jarðböð í morgun. Af því tilefni fékk hún veglega gjöf frá Jarðböðunum.
„Það er gríðarleg spenna í Mývatnssveit í dag. Við búum okkur undir stórt sumar. Þetta er mjúk opnun þessa fyrstu viku og við erum að bjóða upp á 25 prósent opnunartilboð til 15. júlí ef bókað er í gegnum heimasíðuna okkar,“ segir Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, mannauðs- og markaðsstjóri Jarðbaðanna, í samtali við Húsavík.com í morgun.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










