MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Dröfn Teitsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu

Eftir María Hjelm·
R6_15478-vefur
Mynd: evagusta.photos· kaffid.is

Kashima bútasaumssýning verður haldin helgina 17.–18. júlí 2026 klukkan 13–16 báða dagana, að Hólabraut 4 í Hrísey. Sýningin er hluti af dagskrá Listasumars á Akureyri og aðgangur er ókeypis.

Á sýningunni sýnir Dröfn Teitsdóttir bútasaumsverk sem hún hefur unnið á síðustu árum, að stórum hluta innblásin af fuglalífinu í Hrísey. Verkin eru unnin með sérstakri mósaík-aðferð þar sem litir og form byggja upp myndræna heild úr hundruðum lítilla efnisbúta — lóan, krían, svanurinn og lundinn birtast þar í nýjum búningi. Markmið sýningarinnar er að kynna bútasaum sem listform, ekki eingöngu nytjahlut.

Gestir fá einnig að leggja hönd á plóg: boðið verður upp á vinnustofu þar sem hver þátttakandi vinnur sinn hluta í sameiginlegt bútasaumsverk sem verður hluti af sýningunni. Þannig verður sýningin lifandi vettvangur þátttöku og sköpunar fyrir alla aldurshópa.

Þetta er fyrsta einkasýning Drafnar. Hún hefur meðal annars hlotið 2. sæti í evrópskri bútasaumskeppni í flokki byrjenda og tekið þátt í samsýningu á vegum Einhverfusamtakanna. Dröfn er einhverf og hefur fjallað opinskátt um áhrif einhverfunnar á listsköpun sína. Bútasaumslistaverk hennar prýða einnig vörur fjölskyldufyrirtækisins Kashima (kashima.is), sem á rætur í Hrísey og Japan.

„Þetta er stórt skref fyrir mig — að fara út fyrir þægindarammann og bjóða fólki heim í fuglaparadísina okkar. Mig langar að sýna að bútasaumur er listform sem á erindi við alla,“ segir Dröfn.

Dröfn Teitsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu
Mynd: Gestur Leó Gíslason
Gestur Leó Gíslason
Mynd: Gestur Leó Gíslason

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026