Drift EA og Háskólinn á Akureyri vinna saman að nýsköpunLjósmynd: Háskólinn á Akureyri

Drift EA og Háskólinn á Akureyri vinna saman að nýsköpun

Félagið DriftEA, Háskólinn á Akureyri, Cowi, Deloitte, Efla, Enor, Geimstofan, og KPMG hafa staðfest samstarf um nýsköpun á Norðurlandi og undirritað samninga þess efnis. Samningurinn við HA er til eins árs og að honum loknum verður áframhaldandi samstarf skoðað.

Í tilkynningu HA segir Eyjólfur Guðmundsson rektor um samninginn: „Það er virkilega gaman að sjá þessa samvinnu verða að veruleika þar sem í mínum huga eru nýsköpun og frumkvöðlahugsun grunnur framfara. Þessi samningur er hluti af þeirri vegferð að hvetja og styðja starfsfólk og stúdenta til að horfa í átt til nýsköpunar,“

DriftEA er sjálfstætt og óhagnaðardrifið félag um nýsköpun og frumkvöðlastarf og hefur höfuðstöðvar sínar í miðbæ Akureyrar. Þar verður meðal annars hlunnur sem er rými fyrir nýsköpunarverkefni til að vaxa með öflugum stuðningi frá sérfræðingum. Markmið samningsins milli DriftEA og HA er að skapa umhverfi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu og byggja brú á milli rannsóknaumhverfis háskólans og atvinnulífsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HA.

Starfsfólk og stúdentar HA sem taka þátt í verkefnum Driftar EA munu hafa aðgang að aðstöðu í Messanum sem er frumkvöðlarými í húsnæði Driftar EA. Þá mun HA ráða verkefnastjóra í fullt starf sem verður tengiliður skólans og Driftar EA. Mun hann miðla upplýsingum, veita ráðgjöf, tengja samningsaðila og kynna starfsemina fyrir starfsfólki og stúdentum. Verkefnastjórinn verður með starfstöð hjá báðum samningsaðilum og verður staðan auglýst á næstunni.

Í fréttatilkynningu frá DriftEA segir að fyrirtækin sex og Háskólinn á Akureyri séu héðan í frá hluti af kjarnateymi DriftarEA. DiftEA kallar aðila samningsins „Driftara“ og segir það markmið þeirra að „aðstoða og hjálpa frumkvöðlum að þróast og vaxa með því að móta og innleiða áætlanir í takt við þau verkefni sem tekist er á við hverju sinni að hverju verkefni.“ Þjónusta sem fumkvöða vantar getur verið margvísleg en í tilkynningu eru talin upp eftirfarandi atriði:
⦁ Ráðgjöf um fjármögnun og áætlanir
⦁ Aðstöðu og samfélag
⦁ Aðstoð við styrkumsóknir
⦁ Aðgengi að rannsóknar og þróunar verkefnum
⦁ Þjálfun í kynningu og framkomu
⦁ Undirbúning fyrir fjárfestafundi
⦁ Aðgengi að viðtæku tengslaneti DriftarEA á landsvísu og utan landsteina
⦁ Persónulegar tengingar við fjárfesta og aðra hagaðila
⦁ Sérsniðna sérfræðiaðstoð

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdarstýra DriftarEA, segir eftirfarandi um verkefnið:

Það hefur verið virkilega skemmtilegt að vinna síðustu mánuði með Háskólanum á Akureyri ásamt þeim fyrirtækjum sem taka þátt í þessu verðuga verkefni með okkur. Allir sjö aðilarnir hafa verið sérlega áhugasamir um að gerast Driftarar og hafa sýnt það í verki að það er mikill vilji til að vinna saman þó að fyrirtækin séu með einum eða öðrum hætti í beinni samkeppni.

Fyritækin munu verða með starfsaðstöðu hjá DriftEA til að þjónusta frumkvöðla, nýsköpunarfyrirtæki eða verkefni sem verða valin í DriftEA,ásamt því að taka virkan þátt í að þróa verkefni með okkur, vera mentorar, halda fyrirlestra og annað sem tengist því að byggja upp þekkingu á svæðinu og efla nýsköpunarsamfélagið.

“Driftara teymið mun með þessum hætti búa yfir öflugri og fjölbreyttri þekkingu á sviði nýsköpunar, tengslamyndunar,fræðanetsins,verkfræði, lögfræði, fjármála,áætlanagerðar, viðburðastjórnunar, grafískrar hönnunar, auglýsinga og markaðsfræða.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó