Gæludýr.is

Dísir ljóða

Dísir ljóða

Söngkonurnar Ragnheiður Gröndal og Þórhildur Örvarsdóttir sameina krafta sína í nýju verkefni undir yfirskriftinni Dísir ljóða. Þar eru rímur og íslensk þjóðlög í forgrunni. Þær nálgast hina fornu tónlistarhefð Íslendinga á nýstárlegan og skapandi hátt svo úr verður seiðandi hljóðheimur. Með þeim á tónleikunum verða organistinn Eyþór Ingi Jónsson og gítarleikarinn Guðmundur Pétursson. 

Haldnir verða tvennir tónleikar með þessari efnisskrá, annars vegar á Þjóðlagahátíð á Siglufirði 5. júlí kl. 21:30 og í Hlöðunni Litla-Garði, Akureyri 6. Júlí kl. 20:00. Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra

UMMÆLI