MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Dekurleiðsögn í Listasafninu á laugardaginn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
large_dst_3714
kaffid.is

Í tilefni Dekurdaga verður boðið upp á sérstaka dekurleiðsögn í Listasafninu á Akureyri, laugardaginn 11. október klukkan 16. Þá mun Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri, taka á móti gestum og fræða þá um sýningar Bergþórs Morthens – Öguð óreiða, Barbara Long – Himnastigi, Óla G. Jóhannssonar – Lífsins gangur og Sigurds Ólasonar – DNA afa. Aðgangur er ókeypis. 

Dekurdagar fara fram á Akureyri dagana 9.-12. október og þá verður hægt að velja úr fjölda viðburða sem auðga andann og gleðja hjartað, þar að auki bjóða margar verslanir og fyrirtæki upp á ýmiskonar uppákomur og dekurlega afslætti. Viðburðurinn er stór styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Dekurdagar voru fyrst haldnir 2008.

Nú standa einnig yfir sýningar Ýmis Grönvold – Milli fjalls og fjöru, James Merry – Nodens, Sulis & Taranis auk fræðslusýningarinnar Margskonar II og sýndarveruleikasýningarinnar Femina Fabula.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026